10desember
Jább, mín á afmæli í dag :) Dálítið skrítið að vera ekki heima en.... Er annars búin að vera að lesa á fullu og mun að öllum líkindum eyða mestum partinum af deginum í það. Ætlum samt að fara út að borða í kvöld og hafa það huggó :)
Jæja, segi þetta gott - ætla að fara að horfa á dvd með kallinum ;) xxx
08desember
Já í dag er 8. desember, dagur hins flekklausa getnaðar og því frídagur hérna á Spáni. Spánverjar virðast vera duglegir við að 'búa til' hina og þessa frídaga og því mjög mikið um þá hérna. Það var t.d. líka frídagur hérna á miðvikudaginn - breytir svo sem ekki miklu fyrir okkur enda allir dagar mjög svipaðir. Núna einkennast þeir þó af prófalestri - svo það er lítið um frí! Ætlum samt að reyna að gera eitthvað skemmtilegt um helgina svona í tilefni af hinum frábæra degi 10. desember nk. sunnudag :) Við erum að stefna á að fara eitthvað voða fínt út að borða annað kvöld og svo látum við annað ráðast - þarf líka að reyna að einbeita mér að lestrinum.
Jæja, ætla bara að hafa þetta stutt í bili! :)
hasta luego
02desember
Það er greinilega að jólin eru á næsta leyti og þau eru svo sannarlega farin að setja svip sinn á borgina. Jólaljós og skreytingar út um allt, á húsum og trjám. Svo er eins og það hafi poppað upp fullt af jólabúðum út um allt með endalausu jóladóti - hef aðeins kíkt í þær en ennþá ekkert keypt...held ég geri lítið af því þessi jól. Já og svo er búið að planta niður jólarósum hérna alls staðar, í blómapotta og í hin ýmsu blómabeð. Er nú ekki mjög vön að sjá slíkt en get nú samt ekki verið annað en ánægð með það. Hef svo aðeins verið að viðra þá hugmynd við Ísleif að kaupa okkur eina jólarós hingað inná heimilið - hef ekki fengið miklar undirtektir. Spurning hvað við gerum :)
Annars sendu pabbi og mamma með mér út smá afmælisgjöf sem ég stalst til að opna í dag ;) - gat bara ekki beðið!! Var reyndar búin að fá leyfi hjá þeim að opna hana fyrir afmælisdaginn sjálfan svo ég gerði það :) og viti menn haldiði ekki að hjúin hafi sent mér og okkur geilsadisk með 100 íslenskum jólalögum :D sem ég er auðvitað búin að vera að blasta í allan dag - Ísleifi til mikillar ánægju :) Reyndar vissi ég hvað leyndist í gjöfinni og ákvað því meðvitað að opna hana ekki fyrr en í dag. 1. des, svo við fengjum ekki algjört ógeð fyrir jól. Ísleifur hefur reyndar áhyggjur af því samt sem áður en.....ég er búin að lofa að spila diskinn eða diskana ekki of mikið ;) sjáum hvernig það gengur hehe :)
En þó jólaskreytingar séu komnar út um allt hérna þá vantar alveg jólaveðrið!! Get ekki sagt að ég sé vön því að vera úti á stuttermabol í desember. Hvar er kuldinn? og snjóinn? Ég vil hafa þetta allt saman!! Reyndar svo lengi sem það sé ekki á götum borgarinnar og trufli mig í akstrinum ;) En ég verð bara að bíða róleg þangað til við komum heim :) ohh hvað það verður ótrúlega ljúft!!! Get ekki sagt annað en að ég sé farin að hlakka til!!!
Svo keypti ég nokkur jólakort áðan :) ætla að gera tilraun til að skrifa nokkur og senda héðan.
Annars er allt við það sama. Ísleifur á æfingu og ég að reyna að lesa fyrir próf...og það er víst best að halda áfram VEI!!! :)
Saludos
29nóvember
Þá er ég loksins búin að fara á minn fyrsta handboltaleik í deildinni hérna. Leikurinn var á laugardaginn og töpuðum við með einu marki :/ Ótrúlegir þessi Spánverjar - gjörsamlega helltu sér yfir dómarana þegar þeir gengu út af vellinum, bæði í hálfleik og að leik loknum. Ég hef nú orðið vitni að ýmsu enda oft setið með Jónsa og fleirum á handboltaleik heima ;) en aldrei heyrt eða séð annað eins.
Um kvöldið kíktum við svo aðeins yfir til Martin sem býr hérna við hliðina á okkur en þar voru nokkrir úr liðinu. Svaka stemmning alveg ! :) Svo eru mánudagar oft frídagar hérna hjá okkur og í gær skelltum við okkur til Playa de las Americas - sem er sem sagt á suðurhluta eyjarinnar. Tókum bara rútuna báðar leiðir og höfðum það voða gott þar. Fengum samt einhvern vafasaman mat og vorum því hálf slöpp hérna heima í gærkvöldi....en erum hin hressustu núna :D
Ég bjó til myndasíðu fyrir okkur um daginn og linkurinn á hana er hérna til hægri. Þar eru komnar inn nokkrar myndir og eiga eftir að koma fleiri. Er að vinna í því :) Endilega kíkið!!
Annars fer að líða að þessum prófum mínu svo ég er byrjuð að lesa - er einmitt að fara að taka smá rispu í lestrinum núna á meðan Ísleifur er á æfingu. Þannig að ég segi þetta gott í bili. Hasta luego
22nóvember
Steingleymdi alveg að segja ykkur frá smá atviki sem gerðist á sunnudaginn sem kætir eflaust marga. Það var þannig að við Ísleifur vorum á röltinu niðrí bæ og ákváðum að setjast niður og fá okkur eitthvað að drekka. Við settumst niður á stað sem er á litlu torgi... Við vorum ekki fyrr sest niður með drykkina, ég með tinto de verano en ekki hvað og Ísleifur með bjór, að við sjáum dúfu á vappi kringum borðin. Ég var allavega búin að taka eftir henni og kippti mér svo sem ekkert alltof mikið upp við það nema hvað....að allt í einu hefur hún sig á flug og Ísleifi bregður svo hrikalega mikið að hann kippist til og allur bjórinn yfir hann hehe ;) Þannig að það var ekki um annað að velja en að panta sér meira að drekka og sitja þarna örlítið lengur eða þangað til minn maður var orðinn þurr. Og ég gat einfaldlega ekki hætt að hlægja :D Jónsa Yfirdúfu hefði líklegast fundist þetta fyndið!! hehe
22nóvember
Við erum aldeilis búin að hafa það gott síðustu daga. Fórum í gær í bíó á mynd sem heitir Infiltrados eða The Departed. Hún var bara alveg ágæt en auðvitað á spænsku eins og allt hérna :) Eftir myndina löbbuðum við svo niðrí bæ og borðuðum á ægilega kósý veitingastað. Svo uppgötvuðum við um daginn kínverskan veitingastað hérna rétt hjá okkur. Höfum labbað þarna nokkrum sinnum framhjá en einhverra hluta vegna aldrei farið inn. Við sem sagt pöntuðum okkur mat þarna um daginn 'para llevar' eða til að fara með heim og maturinn var alveg ótrúlega góður og ódýr líka svo það var ekki verra :) Eigum örugglega eftir að kíkja þangað nokkrum sinnum í viðbót áður en við förum heim í jólasteikina :)
Annars er bara gott að frétta héðan. Veðrið alveg hreint frábært. Búið að vera svona 25-26-27 stiga hiti sem er bara snilld. Allt annað en í lok ágúst byrjun september :) Svo tók ég upp skólabækurnar áðan....hef ekkert litið í þær síðan ég kom, enda ekki langt síðan. En ég er nebbla að fara í tvö próf í byrjun desember og svo þarf ég að skila verkefnamöppu núna í lok nóvember svo það er ekki verra að fara að kíkja á þetta allt saman. :)
Jæja, þá er kallinn komin heim af æfingu og ekki seinna vænna en að athuga hvað við eigum í ískápnum :) þannig að ég kveð að sinni.
18nóvember
Jæja þá er ég komin út aftur :) ekkert smá gott!! Ísleifur búinn að taka íbúðina í gegn og breyta og gera fínt - alveg æðislegt :) Svo það er bara allt gott að frétta. Ísleifur er reyndar að fara að keppa útileik núna um helgina og þar sem þetta verður langt ferðalag leggja þeir af stað í kvöld :/ sem er kannski ekki alveg eins skemmtilegt en þeim mun betra þegar hann kemur heim aftur :) Ætla bara að hafa þetta stutt í bili - en ég setti inn nokkrar myndir sem við tókum í dag, endilega kíkið á þær :)
Kveðjur úr góða veðrinu, Edda og Ísleifur
16nóvember
Þá eru bara nokkrir tímar í að ég leggi af stað út aftur :) Verð komin úr kuldanum í hitann í kvöld :) og nema netið verði eitthvað leiðinlegt við okkur þarna úti þá koma örugglega einhverjar fréttir hingað inn á morgun :) Tjá
11október
Það var leikur um helgina, P.R.A.S.A. Pozoblanco - Tolimar Tres de Mayo. Leikurinn endaði með tapi minna manna, 28 - 20. Það var víst svakaleg heimadómgæsla í leiknum en svona er þetta bara stundum.
02október
Má til með að koma með smá fréttir að utan :) Ísleifur var að keppa í gær (Tolimar Tres de Mayo - O.A.R. Gracia Sabadell) og þeir unnu með einu marki 26-25 :) Ísleifur stóð sig nokkuð vel, skoraði eitt mark, átti þrjár línusendingar sem gáfu mark og fiskaði eitt víti :)